Í ALVÖRU!!??????

Hvað er í gangi hér á þessu landi..?

Afhverju fæ ég ekki að vita hversu mikið ég skulda sem íslendingur og þá meina ég nákvæmlega það

ef ég fer til bókara míns og spyr hann hvað ég skulda mikið þá telur hann ekki upp eignirnar mínar og segir eftir eignir skuldar þú svona mikið heldur svarar hann strax "svona mikið skuldar þú........"

Er enginn stjórnmálamaður að þora að láta virkilega til sín taka...... sko maður fær aldrei neitt nema að BERJAST fyrir því og það eru margir landar mínir orðnir þreyttir á þessum leik að læðupokast meðfram veggjum við viljum fá mann,konu sem þorir að segja við Breta og aðrar þjóðir að við séum ekki að fara að borga vitleysugang hjá öðrum þjóðum, við eigum alveg nóg með okkar eigin vitleysur

Og ef þeir vilja fara í HART komið þið þá!!!!

Hvað ætla þeir að gera ...? 

Útiloka okkur frá umheiminum..? Gera innrás ? ekki kaupa fiskinn okkar....?

það er nú ekki mikill fiskur þarna hinum megin, og ég veit að Bretinn þolir ekki lengi við án okkar fisk

og það eru nú aðrar þjóðir í heiminum sem hefðu þá áhuga á að stunda viðskipti við okkur þó svo að ESB setti bann við Íslandi,og ef þessi lönd þora að gera eitthvað í þessa átt þá segjum við okkur úr NATO,Norðulandaráði og EFTA .. og gerum bara hlutina sjálf, það yrði nátturulega ekki auðvelt en þess virði og við myndum spara hellings pening sem er borgaður í þessa klúbba 

Við eigum nefnilega eina af fáu gullkistunum í Evrópu.. við getum alveg verið sjálfbær þjóð sem þarf ekki að láta aðra segja okkur hvernig við eigum að gera eða hvenær, en það þarf að berjast fyrir því þetta kemur ekki bara upp í hendurnar á okkur 

Við verðum að þora að takast af alvöru á við aðrar þjóðir sem vilja komast í kistuna okkar með blekkingarleiðum og fyrirslátti

Það tók nú ekkert smá tíma að verða sjálfstæð þjóð.....!!!!!!!!


NEI!!

Ég vill engar breskar þotur sveimandi yfir landinu mínu

það er alveg nóg að þeir  réðust á okkur efnahagslega

og stálu jólunum næstu tvö árin

þarf ekki að láta sprengja mig í loft líka

ÁFRAM ÍSLAND!!!


mbl.is Vill að utanríkismálanefnd ræði samskiptin við Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI TAKK!!!

Ég er með breitt bak og get tekið því að ég skuldi allt í einu öllum í heiminum

vegna samlanda minna  ( sem kunna greinilega ekki að borga reikningana sína sjálfir)

sem rústuðu heilli þjóð...... Fólkinu mínu sem borgar SKATTA HÉR!!!

Koma skal það sem koma skal.

EN ANDSKOTINN hafi að ég samþykki sem sjálfstæður Íslendingur

að þjóðin sem RÚSTAÐI rústunum okkar eigi að koma hingað sem VARNARLIÐ???

svo að aðrar þjóðir RÚSTI okkur ekki...... HA??!!!

Ég sé fyrir mér fréttafyrirsagnir í heiminum 

British to the defend of terrorist nation of New Iceland

NEI TAKK !!!!

Nú vill ég fá hörku mótmæli frá Íslenskum ráðamönnum

Ég get bara tekið við svo miklum skít á ári!!!!

Ekki meir takk

ÁFRAM ÍSLAND!!!!!!!!!

 


Og þá er ég mættur!

Loksins lét ég verða af þessu að tjá mig hér, en maður þarf víst að passa sig á að segja ekki of mikið stóri bróðir er víst að fylgjast með, það má bara seigja ljótt....  þegar það fer mjög hljótt!!

Ég veit stundum ekki hvort að manneskjur sem eru í stjórnmálum, séu bara allveg gjörsamlega raunveruleikafyrtar.... Eða bara svona vitlaust!

Reynið þið að vera til! Á þessum launum sem duga ekki fyrir því... að vera til, hér í þessu landi  

Mér þykir mjög vænt um landið mitt (og þitt) og líka um fólkið sem kýs að búa hér á hjara veraldar hvort sem það er al-íslenskt eða ný-íslenskt,

og fólk sem er nógu klikkað til að koma hingað til að vera, á allt gott skilið!

Ég legg til að ríkið (ég og þú ) þjóðnýtum olíufélögin á morgun, tökum þau bara eignarhaldi við erum hvort sem er búin að borga fyrir þau!! 

 


Um bloggið

Jónas Harðarson

Höfundur

Jónas Harðarson
Jónas Harðarson
Verkamaður og fyrrum sjómaður,Einstæður faðir sem veit ekki lengur hvert menn(og konur) ætla sér að fara með landið ....á útsölu-uppboð eða bara beint á ruslahaugana
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2008.29.12 120
  • mars 09 086
  • IMG 1820
  • IMG 1809
  • IMG 1881

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband